Íbúafundum 7. og 8. febrúar- AFLÝST

Boðað er til íbúafunda til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem kosið verður um þann 19. febrúar næstkomandi. Fundunum verður einnig streymt á fésbókarsíðu verkefnisins. Íbúar eru hvattir til þess að mæta
á fundina og kynna sér álit samstarfsnefndar og kynningarefni á vefsíðunni skagfirdingar.is

Íbúafundir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

• Miðgarður 7. febrúar kl. 17:00 til 18:30
• Héðinsminni 7. febrúar kl. 20:00 til 22:00
• Hofsós 8. febrúar kl. 17:00 til 18:30, í Félagsheimilinu Höfðaborg
• Sauðárkrókur 8. febrúar kl. 20:30 til 22:00, á KK restaurant

Íbúum er frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta. Í ljósi samkomutakmarkana er mikilvægt að vita hve margir íbúar mæta á hvern fund. Þeir sem ætla að mæta á á staðinn þurfa að skrá sig fyrirfram hér á vefnum.

Fundunum verður streymt á fésbókarsíðu verkefnisins. Þátttakendur í fundarsal og þeir sem fylgjast með rafrænt geta sent spurningar til samstarfsnefndar í gegnum samráðsforritið menti.com og einnig verður hægt að koma ábendingum og fyrirspurnum á framfæri í fundarsal.

Á menti.com er hægt að gefa spurningum annarra atkvæði til að færa þær framar í röðinni eða skrá inn nýja spurningu. Einnig verður boðið upp á hnitmiðaðar spurningar úr sal.