SKAGFIRÐINGAR

Sveitarstjórnir Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa ákveðið að kanna möguleika á sameiningu sveitarfélaganna tveggja og munu íbúar kjósa um tillöguna 19. febrúar næstkomandi. 

Verkefnið hefur hlotið verkefnisheitið Skagfirðingar og er unnið í samræmi við stefnu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sameiningu sveitarfélaga og þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019–2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019–2023.

Skipuð hefur verið samstarfsnefnd með fimm fulltrúum frá hvoru sveitarfélagi og tveimur til vara. 

Samstarfsnefndin hefur samið við RR ráðgjöf um að stýra verkefninu og leiða vinnu við greiningar.