Skagfirðingar athugið. Breytt fyrirkomulag íbúafunda um sameiningarmál

Í ljósi óhagstæðs veðurs og takmarkaðrar skráningar á staðfundi hefur verið ákveðið að aflýsa fundum í Miðgarði, á Hofsósi og á Sauðárkróki. Í staðinn verði rafrænn fundur mánudaginn 7. febrúar kl. 20 og staðfundur í Héðinsminni þriðjudaginn 8. febrúar kl. 20. Báðir fundir eru opnir öllum íbúum í Skagafirði. Í ljósi samkomutakmarkana er mikilvægt að skrá sig hér til þátttöku á fundinum í Héðinsminni. 

Smellið hér til að tengjast inn á rafræna fundinn eða á farið á https://www.facebook.com/Skagfirdingar til að fylgjast með streymi frá kynningum. Áhorfendum gefst kostur á að senda spurningar inn á fundinn. Þau sem skrá sig inn á Zoom fundinn geta tekið þátt í umræðum,  beðið um orðið og tekið til máls. Kynningin verður tekin upp og gerð aðgengileg á vefsíðu verkefnisins. 

Á fundinum verður kynning á framtíðarsýn samstarfsnefndar og forsendum fyrir sameiningartillögu hennar. Í kjölfar kynningarinnar gefst íbúum færi á að ræða niðurstöðurnar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi þær og sameiningu sveitarfélaganna almennt. Efnistök fundanna tveggja eru hin sömu en tilgangur þess að halda tvo fundi er að gefa sem flestum íbúum tækifæri til að taka þátt.

Leiðbeiningar til að tengjast Zoom

Hægt er að fylgjast með og taka þátt í hvaða snjalltæki sem er. Besta upplifunin fæst ef fylgst er með í tölvu. Gott er að setja Zoom-hugbúnaðinn upp á þá tölvu eða snjalltæki sem þú ætlar að nota tímanlega áður en fundurinn hefst. Þau sem eru þegar búin að setja upp Zoom á sínum vélum eru beðin um uppfæra í nýjustu útgáfu til að fá bestu virkni í umræðuhópum.

Zoom fyrir borðtölvur er á síðunni https://zoom.us/download en Zoom-smáforrit fyrir Android snjalltæki eru á Play Store og á App Store fyrir iPhone og iPad. Einnig er hægt að nota vefviðmót fyrir Zoom (Zoom Web Client) en virkni þess er takmarkaðri en virkni þess hugbúnaðar sem settur er upp á snjalltækinu.

Við mælum með að fólk mæti snemma fyrir framan skjáinn svo tími gefist til að bregðast við tæknilegum vandkvæðum sem geta komið upp við innskráningu. Aðgætið að heyrnartól og hljóðnemi séu tengdir við tölvuna/snjalltækið og virki sem skyldi. Í umræðum er gott að þátttakendur séu með virka myndavél og sjái hver annan. Einnig er hægt að leita leiðbeininga á skrifstofum sveitarfélaganna.

Þátttakendur eru beðnir um að skrá fornafn við myndina. Það er gert með því að smella á punktana þrjá sem birtast þegar bendillinn er dreginn yfir myndina sína og velja "rename".

Ef þú ert með veika tengingu á þráðlausu neti þá mælum við með að þú tengir þig með netsnúru.